Aðalfyrirlesari
Gary S. Becker er einn kunnasti og virtasti hagfræðingur heims. Hann fæddist í Pottsville í Pennsylvaníu 1930 og nam hagfræði í Princeton-háskóla og Háskólanum í Chicago, en þaðan lauk hann doktorsprófi 1955. Hann kenndi hagfræði í Háskólanum í Chicago og Kólumbíuháskóla í Nýju Jórvík (New York), áður en hann gerðist 1970 prófessor í Háskólanum í Chicago. Hann hefur einnig prófessorsembætti í félagsfræði í Háskólanum í Chicago og er rannsóknarfélagi í Hoover-stofnuninni í Stanford-háskóla í Kaliforníiu.
Doktorsritgerð Beckers var hagfræðileg greining á mismunun kynþátta, þar sem hann komst að þeirri niðurstöðu, að hún bitnaði ekki síður á gerandanum en þolandanum. Þetta verk var mjög umdeilt á sínum tíma, en nú viðurkennt sem frumlegt og skynsamlegt framlag til aukins skilnings á þessu félagslega fyrirbæri. Becker hefur einnig ritað margt um mannauðsmyndun, en hann líkir skólagöngu við fjárfestingu, og um fjölskylduna, en hann greinir heimilið sem eins konar fyrirtæki eða verksmiðju. Hann hefur einnig tekið glæpsemi og fíkn hagfræðilegum tökum.
Becker hlaut Nóbelsverðlaunin í hagfræði 1992. Hann var um langt skeið dálkahöfundur fyrir Business Week, og hann og annar Chicago-hagfræðingur og lögfræðingur, Richard Posner dómari, halda saman úti víðlesinni netdagbók.
Ráðstefna 26. júlí 2007: Skattalækkanir til kjarabóta
Ráðstefna 14. september 2007: Ísland sem fjármálamiðstöð
Bók 10. janúar 2008: Cutting Taxes to Increase Prosperity
Erindi 7. desember 2007: Hefur Ísland vikið af hinni norrænu leið?
